OssomTossom mælir með að sem flestir trítli út á bókasafn og ná sér í Stardust áður en hún kemur í bíó.
Nú, sumir gætu svosem fengið hana lánaða hjá honum, líka. Samkvæmt Neil Gaiman, hins vegar (sjá hér til hliðar), þá á þessi mynd að koma tíunda ágúst á þessu ári. Það er því ekki seinna vænna að lesa bókina áður en myndin kemur. Sumir gætu þó haft meira gaman af því að lesa myndskreyttu útgáfuna.
Það er aldeilis langt síðan ég skrifaði hérna síðast. Alveg bara ríflega vika. Svona er letin ferleg. Eða kannske ekki beinlínis leti þar sem ég hef verið iðinn eins og maur, bara annars staðar heldur en hér. Eftir að hafa barist við lítt virkandi DVD-drif í þessari tölvu allt of lengi, þá tók ég mig loksins til um daginn, föstudaginn ef ég man rétt, og kippti þessu í liðinn. Síðan þá hef ég horft á ófáa diskana - það myndi æra óstöðugan að telja þá alla upp hér, en það ætti varla að koma á óvart að Coupling hafi verið þar á meðal. Annað eins safn af vitleysingum, ha? Nú, svo í tilefni þessa virka DVD-drifs ákvað ég að fá mér aðeins meiri tímaþjóf - eitthvað til að búa til meiri frítíma, sko - og fékk mér Rome: Total War, sem er alls ekki galinn, nema ef maður vill hafa leikinn tiltölulega sagnfræðilega réttan (einhvers staðar, til dæmis á Wikipedia, má finna alls konar upplýsingar um gloppur í sagnfræðikunnáttu leikhöfunda).
Svo varð ég vitni að því (þótt það hafi verið í gegnum sjónvarp) þegar fyrsta snertimark var skorað eftir kick-off í Superbowl. Mikið var ég kátur þá, enda hafði ég ákveðið ríflega kortéri áður að halda með Chicago frekar en Indianapolis. Þetta var hins vegar tiltölulega leiðinlegur leikur uppúr síðari hálfleik, og það hvarflaði jafnvel að mér að fara að halda með hinum - en ég hélt nú aftur af mér og þraukaði, fylgdist með mínum mönnum (já, eða þannig) missa blauta bolta og komast aldrei spönn frá rassi, eiginlega. En svona er þetta nú.
Sjáumst.

5 Comments:
Ég vissi ekki að Þossinn væri ruðningsmaður. humm eitthvað ekki að passa hér.
:)
:D Ég er enginn blóðheitur aðdáandi (reyndar er ég hrifnari af ruðningi heldur en amerískum fótbolta, en það er nú ekkert sem ég fylgist með af ákafa - aðallega vegna þess að ég get það eiginlega ekki) en það er samt gaman að horfa á þetta þegar maður kemst aðeins inn í málin.
Sammála þér með ruðninginn Þossi, við verðum einhverntíman að skella okkur á pubbinn og horfa á einn slíkan leik, verst að sísonið er náttúrulega búið núna.
-Frikki
Aftur ertu horfinn :'(
Nei heyrðu! Nú fer ég að setja missing person auglýsingu í blaðið heima, hringi jafnvel í lögguna og fæ hana til að setja tilkynningu í kvöldfréttirnar...
Hvar ertu Þorsteinn? (kallað hátt og síðan varla heyrist í lokin, jafnvel smá bergmál í kaupbæti)
Skrifa ummæli
<< Home