Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

14.12.06

Ossom bloody Tossom

Það getur verið dálítið snúið að skilja allar þessar víddir, a.m.k. þegar komið er upp í þá fjórðu. Jafnvel snúnara að skýra þær með teikningum, þar sem við getum eiginlega bara teiknað í þrem víddum (ef það). Það þýðir þó ekki að það megi ekki reyna. Mér finnst eitthvað afskaplega notalegt að hugsa til þess að til sé fólk sem ver talsverðum tíma í að velta svonalöguðu fyrir sér. Það væri auðvitað gaman að kynna sér svona lagað nánar, en til þess að geta það þyrfti maður sennilega kunna aðeins meira í stærðfræði og eðlisfræði til að skilja allar formúlurnar sem þessir eðlisfræðingar setja líklegast í ritgerðirnar sínar. Jæja, það er svosem ekki of seint að byrja.

Já, það er margt sem maður finnur sér til dundurs þegar maður ætti að vera að læra fyrir próf.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

úff hvað ég á erfitt með að skilja þetta dót, þegar ég var kominn að 5du víddinni, var ég orðinn vel ringlaður! :D

12:35  

Skrifa ummæli

<< Home