Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

28.1.08

Sálfræðing? Við þurfum sko engan sálfræðing!

Örugglega gaman að vera í hljómsveit með mönnum sem geta leyst úr ágreining sínum án þess að þurfa að tala við sálfræðing.

Afskaplega er ég feginn að vera kominn í frí. Eða þannig sko ... þetta er eiginlega ekkert frí. Ef allt fer eftir planinu, þá á ég eftir að verja talsverðum tíma í hlöðunni að moka flórinn (eða hvað sem maður svosem gerir í hlöðum ... kannske var ég að hugsa um fjós?) ... þannig kem ég í veg fyrir að húsverkin trufli mig við mikilvæg störf. Uppvask? Ég get bara sett allt draslið í sturtuna og svo bara spúlað allt draslið. Eins með fötin - ég kaupi bara bor í Byko, set upp slatta af snúrum inni á baði, hengi upp skítugu larfana mína og hósanna þá.

Verst að ég er með trégólf, annars myndi ég bara kaupa langa langa slöngu líka.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hehe, þú gætir líka bara sett fötin og óhreinatauið saman í haug og keypt eitt stykki háþrýstidælu í Europris og spúlað allt í einu! það er a.m.k nóg pláss inni á klói ;)

knús
Kári

21:48  
Blogger Þossi said...

Glansandi! Þannig verða diskarnir og glösin eftir háþrýstinginn ... a.m.k. það sem brotnar ekki. Kannske ég skipti þá bara í leiðinni yfir í stál- eða áldiska.

21:36  

Skrifa ummæli

<< Home