Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

7.9.07

Sísífos

Á laugardaginn reið ég rafti. Mér er alveg sama hvað fólk segir um að orðasambandið „að ríða röftum“ þýði eitthvað allt annað, og að „raftur“ sé húsþak eða eitthvað álíka óspennandi. Hvað mig varðar, þá eru hljóðin í „rafting“ og „raftur“ nógu lík til að mér detti ekkert fallegra orð í hug fyrir svona útiveru heldur en „raftareið“. Punktur og basta.

Þetta var annars ósköp skemmtilegt, að róa og fljóta svona niður ána. Bara útsýnið og landslagið var þess virði að detta einu sinni í vatnið (sem var alls ekki eins kalt og maður hefði haldið). Ætli ég fari ekki aftur í svona? Guðjón, ein hjúkkan á deildinni, sagði frá því að hann hefði farið í eina tveggja daga raftareið á Indlandi eða í Nepal, og ég skal alveg trúa að eitthvað þess háttar sé alveg meiriháttar. Í allra minnsta falli getur maður ímyndað sér að maður sé í Hringadróttins sögu eða eitthvað ...

Í gær held ég svo bara að ég hafi komist eins og einu hænufeti nær því að klára heimspekina, þegar ég senti leiðbeinandanum það sem ég vona að sé svo gott sem heil ritgerð. Efalaust má klippa af sumum köflum og bæta við aðra, bæta uppsetningu eitthvað og snurfusa hér og þar, en annars held ég að þetta sé bara ansi nálægt markinu.

Og þegar ég næ því byrja ég upp á nýtt, í þetta sinn á ensku. Ég ætla að vísu ekki að byrja fyrr en hitt er í höfn, en ég er þó farinn að velta fyrir mér hugsanlegum efnum. Það kemur allt í ljós síðar.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kemstu ekki alveg upp með að þýða bara heimspeki ritgerðina þína yfir á ensku ????

-Frikki

19:58  
Blogger Þossi said...

Kannske ... en ég veit ekki hvort mig langi til þess ;) Væri gaman að geta lagt þetta á hilluna, a.m.k. í smá stund, eftir að hafa klárað það og snúið mér að einhverju öðru ...

22:00  
Blogger sigga said...

Og í hvaða á reiðstu rafti? Vonandi bara einhverri lygnri og fossalausri? Bara spyr svona af móðurlegri áhyggjulausri forvitni;)

22:09  
Blogger Þossi said...

Það var nú bara í henni Hvítá (á Suðurlandi, ekki þessi í Borgarfirði eða hvar svosem hún er) - semsagt þessi sem er með Gullfossi í. Minnir mig.

16:17  

Skrifa ummæli

<< Home