Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

15.10.07

Nýjasta nýtt

Allir á Stardust. Þetta er barasta ein alskemmtilegasta mynd sem ég hef séð í bíó á þessu ári. Að vísu hef ég bara séð tvær myndir í bíó, og hin var 300. Það er því ekki beinlínis um mikla samkeppni að ræða. Þetta er fjörug og skemmtileg ævintýramynd með einhyrningum, nornum, draugum og fljúgandi sjóræningjum (og því ekkert óraunverulegri en 300 með öllum þeim ófreskjum sem þar birtust í smá stund), en sagan er töluvert áhugaverðari, og aðalleikararnir gera meira en að öskra og geifla sig framan í myndavélina - og eru þar að auki í betri búningum.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ok ég skal gera það :D en þú skalt tékka á myndablogginu okkar Sigga http://krassogkrot.blogspot.com !!

Kossar
Kári

09:48  

Skrifa ummæli

<< Home