Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

29.3.08

Trukkar og traffík

Einhverjir trukkarar tóku sig til í gær og lokuðu á alla umferð. Flott hjá þeim, svo langt sem það nær. Súrt þegar allir virðast vinna að því að gera vinnuna manns enn dýrari en nauðsynlegt er - og slæmt fyrir ófáa þegar þetta er jafn nauðsynleg vinna og þeirra er. En væri ekki nær að láta þetta bitna á þeim sem eiga það skilið - bensínstöðvunum og ríkinu? Hvernig væri að taka sig til og loka á þær bensínstöðvar sem mest er verslað við (án þess að trufla aðra umferð, ef kostur er) og á a.m.k. bílastæði viðeigandi ráðuneyta, og svo alþingismanna?

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Where you at?! Ekkert til að blogga um, aldrei á msn...hvar ertu!!!??

Miss you guy
Kári

19:43  
Blogger Þossi said...

Hey man!

Ég lifi ... en skóli og vinna eru að gleypa alla mína orku sem stendur. Ég geri fastlega ráð fyrir því að verða virkari frá og með 2. maí.

Hlakka til að heyra í þér ... og auðvitað að hitta ykkur öll þegar þar að kemur :)

00:24  

Skrifa ummæli

<< Home