Warning - OssomTossom may cause terminal priapism
Ég hef tekið eftir því að ég skrifa allt of mikið hérna. Allt of langar færslur. Ég skal reyna að passa mig framvegis, skipta þessu niður á nokkra daga ef þetta er orðið að einhverjum langhundi.
Um daginn heyrði ég þá kenningu, að það væri réttast að skylda menn með lögum til að kjósa. Jafnvel sekta þá sem tæku ekki þátt. Ég man þá tíð þegar ég hugsaði svona - þá var ég fimmtán ára. Núna finnst mér þetta álíka skynsamlegt og að skylda fólk til að skrifa a.m.k. eitt lesendabréf til Moggans á mánuði. Jafnvel væri margfalt betra að skylda alla sem hafa kosningarétt til að tjá sig opinberlega um „málefni líðandi stundar“ einu sinni í mánuði, þar sem (ég held að) skynsamleg og reglubundin framsetning mála sé mun áhrifameiri, til lengri tíma litið, heldur en kosningar á fjögurra ára fresti - og sömuleiðis, heimskuleg og vesæl kynning einhvers tiltekins sjónarmiðs hafi meiri áhrif á hvernig þetta samfélag þroskast heldur en áðurnefndar kosningar. Góð hugmynd sem er vel rökstudd og stendur af sér gagnrýni á vonandi eftir að fá fleiri fylgismenn, á meðan slæm og illa rökstudd heimskuleg hugmynd á eftir að fæla fólk frá.
Sem sagt: Ef það á yfirleitt að skylda fólk til að taka þátt í svonalöguðu, þá er skárra að skylda fólk til skoðanaskipta heldur en til að mæta á kjörstað.
Ég hélt alltaf að tannlækningaleyfi tannlæknisins míns hafi verið „free inside“ í einhverjum kókópuffspakka eins og hvert annað leikfang, en núna veit ég loksins hvar hann lærði til verka. Hann var nefnilega hvalskurðarmaður hér í den, og var mættur í fréttir í gær (ásamt barnabarni) til fylgjast með því þegar fyrsti hvalurinn var skorinn. Það er gott að vita til þess, að maður sé í öruggum höndum hjá þessum öðling.

2 Comments:
skemmtileg skrif hjá þér. Ég hef nú alltaf vitað að þú ert góður penni. Einhverntíman verður jólagjöf til allra minna bók eftir Þorstein Thorarensen. :)
:D Takk - vonandi að þú eigir eftir að gera þetta einhvern tímann. Í versta falli - þá geturðu gefið þeim þýðingu eftir ÞTh.
Annars hét hann Þorsteinn Thorarensen, maðurinn sem þýddi til dæmis Gosa og fleiri ágætar barnabækur. Gott ef hann lærði ekki ítölsku til þess eins að geta þýtt Gosa beint úr frummálinu.
Skrifa ummæli
<< Home