I'm OssomTossom - or a woman who has really let herself go
Ég fæ víst ekki að byrja í nýju vinnunni minni fyrr en á miðvikudag. En nú er lesvika, og þá er svo margt sem maður þarf að gera.
1. Klára innsláttinn á Gunna-þýðingunni. Ég ætti nú að ná því í dag og á morgun (vinna minna um helgina en ég bjóst við).
2. Lauslesa lesefni vetrarins, eða það sem eftir er. Þá slepp ég kannske við þá afleitu niðurlægingu að ná bara öðru sæti í breskum bókmenntum. Í alvöru - annað sæti er sama og neðsta sætið, bara aðeins örlítið skárra. Ekki betra - skárra.
3. Klára gamla Medieval: Total War-leikinn minn. Þetta er bara orðið býsna áhugavert, kominn á síðasta fjórðung fjórtándu aldar sem Danir: Heiminum er eiginlega skipt á milli mín og Almóradavída (múslimar frá Spáni). Kænugarðsrússar eiga svo dulítið, og Englendingar og Páfagarður skipta svo mið-Evrópu á milli sín - og eru önnum kafnir við að berja á hver öðrum. Afar spennandi að sjá hvernig fer - aðeins ~78 ár eftir.
4. Lesa „eitthvað“. Ég hef veitt því athygli, að ég hef verið að sanka að mér bókum - hirt hér og þar, á Amazon, bókabúðum notuðum og nýjum, og heima hjá pabba - sem ég hef ekki ennþá lesið. Að maður tali nú ekki um bækurnar sem fólk hefur verið iðið við að gefa mér. Jæja, nú mun ég ekki taka að mér fleiri bækur fyrr en ég hef lesið meirihlutann af þessum. Hillurnar verða bara að vera tómar þangað til! Þó var það ein bók sem ég er alveg til í að eignast - bók sem ég hef lesið margoft. Ár hérans. Eigi einhver sem les þetta þessa bók til í tveim eintökum skal ég - alveg gjaldfrjálst - hjálpa viðkomandi við að rýma hillur sínar og taka þess bók að mér. Ég skal ekkert rukka fyrir þetta - svoddan ljúflingur sem ég er, mér þykir bara gaman að gera svona greiða.
Þetta er semsagt forgangsröðin.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home