Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

31.10.06

OssomTossom vill meira en hann getur

Í vinnunni fæ ég stundum samviskubit þegar ég sel samlokur fyrir hátt í fimmhundruð kall. Mig langar að segja við persónuna hinum megin við afgreiðsluborðið að hún geti prófað að koma þegar við lokum, því þá getur hún fengið samlokuna frítt (sé hún á annað borð ennþá til) - þeim samlokum sem seljast ekki er nefnilega bara fleygt, og þá finnst mér að ég geti alveg eins bara gefið þær (þ.e. gefið þær sem ég tek ekki með heim til að borða næstu daga). Bara verst að ég get ekki sagt öllum þetta, því þá væru sennilega ekki nógu margar samlokur til handa öllum.

En nú er ég aðallega með samviskubit vegna þess að ég hef ekki ennþá byrjað á að skrifa þessa stuttu ritgerð sem á að skila á morgun. Hún er meira og minna tilbúin í kollinum mínum, en ekkert er til á blaði. Ég get þó réttlætt þetta með því, að ég hef verið utandyra meira og minna síðustu tvo tímana og er frekar kaldur á fingrunum. Þeir eru því afskaplega stirðir og þreyttir, og eiga erfitt (erfiðara en venjulega) með að hitta á réttu takkana í réttri röð. Smá skrif hér eru bara ágæt upphitun.

Ég sé að Dodda er farin að skrifa aftur. Áhugaverðar pælingar hjá henni frá því á föstudaginn, um jákvæða hugsun og þess háttar. Ef einhver er að lesa þetta eftir ár (haha) þá er færslan sjálf hér.

Ég hef gleypt í mig tvær bækur síðan á sunnudaginn. Bara fyrsti lestur - hraðlestur - en hellingur af umhugsunarvekjum í þeim báðum. Önnur er Gæfuspor og hin er Dansað á ösku daganna. Báðum tveim er óhætt að mæla með. Auðvitað er maður ekki sammála hverju orði sem í þeim stendur, en það er heldur ekkert aðalatriði að lesa bara það sem maður er sammála. Hitt getur jafnvel verið skemmtilegra - eftirá. Ég játa alveg að það er ekkert gaman á meðan á því stendur að lesa bók, ef mann langar á stundarfimmtungs fresti að fleygja henni útum gluggann, bölvandi þessu helvítis þvaðri. Bækur sem er óhætt að grípa næst þegar leið liggur um bókasafn.

Jæja, þá eru fingurnir orðnir sæmilega hlýjir og liðugir. Góða nótt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home