Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

30.10.06

Settu OssomTossom í tankinn þinn!

Það var fjör á Halloween-grímuballinu sem enskan hélt á föstudaginn. Ég var munkur. Einhvern tíma get ég kannske sýnt ykkur myndir af mér í múnderingunni. Ekki í dag samt. Var ég ekki búinn að lofa að sýna myndir af pípuhreinsara- og korktappastyttunni sem ég bjó til um daginn? Munkamyndin mun fylgja þeim myndum.

Ef þið eruð eins og ég - sem þið eruð, auðvitað - þá hafið þið, rétt eins og ég, oft legið andvaka dögum, vikum - já, jafnvel mánuðum saman og velt fyrir ykkur þessari grundvallarspurningu: Ef til þess kæmi, hvor myndi vinna í stríði: Star Wars eða Star Trek? En nú hef ég loks fundið svarið, og svarið er að finna hér.

Ef þið fylgist vel með, þá sjáiði kannske Wil Wheaton bregða fyrir. Ég veit í alvöru ekki af mörgum sem hafa liðið jafn mikið fyrir að leika óvinsæla persónu í geimsápuóperu (sem má líka kalla nördasápuóperu eða bara scifi-óperu). Ég játa það fúslega, að síðast þegar ég horfði á Star Trek: The Next Generation, þá þoldi ég ekki þennan leiðinda Wesley Crusher, og ég veit ekki alveg til hvers hann var hafður með - Data var alveg nóg comic relief, og alveg nógu saklaust barn, líka. Kannske þótti höfundum nauðsynlegt að hafa alvöru barn þarna líka, svona til að gera þættina fjölskylduvænni. En það var þó ekki laust við, þegar ég sá þessa þætti fyrst* að ég öfundaði strákinn pínulítið. Ég var þá, eins og ég er enn þann dag í dag, sannfærður um að þetta hafi verið bæði skemmtilegt og spennandi að leika í Star Trek - að ég tali nú ekki um að fá tækifæri til að kynnast mönnum eins og Patric Stewart, Michael Dorn og Brent Spiner. Ég er nokkuð viss um að þetta séu allt saman hressir kallar.

Kannske ég bæti honum líka inn á tengingalistann minn - en þá þarf ég sennilega líka að taka mig til og flokka hann enn nánar. Ég á því ekki eftir að gera það í kvöld.

*- En þá hef ég verið svona 16-17 ára, jafnvel 15 - ég man eftir að hafa horft á þá úti á Rekagranda, og þaðan flutti ég í lok fjórða bekkjar, og get því ekki hafa verið eldri en sautján; hins vegar getur vel verið að ég hafi verið yngri þegar ég sá þá úti í Noregi, en ég get ekki verið viss lengur - allt of langt um liðið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home