Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

27.10.06

The OssomTossom of Spades

Ég rumskaði í morgun og heyrði dropahljóð. „Allt í lagi,“ hugsaði ég, „það er nú búið að rigna í alla nótt - ætli þetta séu ekki bara dropar á svölunum?“ Ég vaknaði og skildi að dropahljóðið var hérna megin svalahurðar. „Já en, var ekki búið að laga þetta?“ spurði ég sjálfan mig. Og jú, mikið rétt - þessi leki var „lagaður“ einhvern tíma í vor. Greinilega var ekki lagað til frambúðar, eða þá að þetta er nýtt vandamál. Ég ætti svosem ekkert að kvarta - þetta er nú mun minna en var þegar allt var á floti hér fyrri hluta ársins. Ég man ekki hvenær það var, kannske í febrúar eða mars. Þá gat ég ekki eldað, því allir mínir pottar voru notaðir til dropagrips.

Ég tók hins vegar gleði mína á ný þegar ég hafði kveikt á tölvunni og komst að því að nú er verið að gera mynd um Spartverjana í Laugaskarði, byggða á teiknimyndasögu Franks Millers (ekki sagnfræðiritum). Myndin er 300, og á að koma 2007. Teaser-trailer er hér. Ég held að það sé útséð með það, að ég muni fara a.m.k. einu sinni í bíó á næsta ári - jafnvel þótt verðið hafi þá hækkað í þúsundkall. Kannske maður byrji bara strax að spara - hver veit hve hátt verðið verður að ári?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home