OssomTossom - doubleplusgood
Ég fór í göngutúr áðan. (Ja hérna!) Það er fátt skemmtilegra en að fara í góðan göngutúr, langan og góðan - svo framarlega sem það hvorki rignir, snjóar né haglar á mann. Þegar svo viðrar er betra að hafa túrana stutta. Ég tók ekki tíman á þessari göngu (en gæti svosem komist að honum, þarsem ég var með ipoddinn minn og get því reiknað út frá lögunum), en ég giska á að þetta hafi verið svona fjórir tímar:
Fylgdi nefinu útí Nóatún hvar ég keypti nesti (jerky og ávaxtasafa) og síðan eftir göngustígnum útí Gróttu. Gekk þar um í ströndinni og fleytti kellingar og bölvaði sjálfum mér að hafa ekki haft með lítinn poka fyrir skeljar og þess háttar - kærði mig ekki að setja þær beint í töskuna ásamt bókum og öðru sem vill ekki blotna. Nú, þaðan gekk ég svo meðfram suðurströnd nessins, alveg að botni Fossvogs. Þá fór ég upp með Kringlumýrarbraut, beygði til hægri hjá Miklubraut - og beina leið heim.
Ég er dálítið blöðróttur á fótunum (báðum tábergjum og a.m.k. öðrum hælnum), en mikið óskaplega var þetta gott og skemmtilegt. Skárra en að sitja fyrir framan tölvu í fjóra tíma, svo mikið er víst. Næst - prófa að hafa enga tónlist með. Hún dró eiginlega athyglina frá göngunni.
Svo var ég líka að komast yfir Judgment Night-tónlistina, en ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira í bili, svo ég læt nægja að segja að það eru fantagóð lög á þeim disk. En þið vissuð það nú svosem fyrir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home