Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

24.10.06

Ossom á hægri hönd, Tossom á þá vinstri - hyldýpi framundan og þverhnípi að baki

Ég hef gert dulitlar breytingar á tengingunum hér, flokkað þær eilítið og bætt nokkrum við. Vonandi að þetta komi ágætlega út.

Ég tek eftir því sem ég skrifa, að talsverðar breytingar hafa verið gerðar á Bloggtækinu sjálfu. Nú þarf ég ekki lengur að fara í Character Map og afrita <> til að feitletra, búa til tengingar og þess háttar. Ég þarf samt að fara þangað til að fá almennilegar íslenskar gæsalappir. Annað hvort er þetta Blogger að þakka, eða þá nýja Opera. Ég var nefnilega að fá mér versjón níu um daginn, og það er nú misjafnt hve vel ég tek eftir nýjum hlutum.

Annars langaði mig nú bara að deila þessum myndböndum með lesendum. Þið eigið það nefnilega skilið. Dailor er frá Mastodon, Haake frá Meshuggah, og Pennie er frá The Dillinger Escape Plan. Hver öðrum skemmtilegri (ef ekki betri) - alveg sama í hvaða röð þeim er raðað. In Fiction er stytt útgáfa af lagi sem er að finna á Panopticon, sem Isis gaf út í fyrra eða hittifyrra.

Þrír trommarar og ein hljómsveit

Brann Dailor, Tomas Haake, Chris Pennie, og In Fiction.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home