Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

27.10.06

Að hitta OssomTossom er eins og að lenda í árekstri við lest sem ber áttatíu tonn af sexi

ður en lengra er haldið er ekki úr vegi að óska henni Sunnu litlu (og ekki-litlu foreldrum hennar líka, auðvitað) til hamingju með daginn.

Heiti þessarar færslu kom frá Questionable Content, nýjasta Webcomicið sem ég hef bookmarkað. Já, stundum er ég aðeins eftir á og þarf að verja eins og einum degi í að lesa allt sem á undan hefur gengið, en oftast er það þess virði. Það var þess virði með 8-bit Theatre og Sinfest, og mér sýnist það vera þess virði hér. Margar fínar setningar þarna - mig grunar að ég eigi eftir að nota þær sem titil næstu færslna. Eitthvað verða þær að heita, færslurnar, og ekki vil ég vera eitthvað „on topic“ ...

Gleymdi hins vegar að segja frá því í gær, að úti í Nóatúni hitti ég Danna. Þar sem ég sá hann standa þarna spengilegan tók ég ákvörðun: Ef ég get breytt vaktaskipulaginu mínu, þá ætla ég að kíkja á æfingu hjá Mjölni núna á mánudaginn. Líki mér þar, þá er aldrei að vita nema ég haldi áfram. Langar einhvern með?

Eins og ég sagði lítillega frá í gær, þá er ég loksins kominn með Judgment Night-tónlistina. Loksins loksins! Að geta loksins hlustað á gullaldar-Biohazard og Onyx (veit ekkert um þá, og því ekki heldur hvort þetta hafi verið þeirra gullöld) taka lagið saman - alveg þess virði að bíða svona lengi. Mögulega ein sú alkröftugasta rapp-metal blanda sem ég hef heyrt - slær t.d. Rage Against The Machine léttilega við í krafti, jafnvel þótt Biohazard-strákarnir séu engir Morello. Það er bara svo mikill kraftur í tónlistinni, og textaflutningurinn er ekkert slor. Mann langar bara næstum því að verða sér úti um eitthvað með Onyx, svo kröftugt er þetta hjá þeim. Slayer og Ice-T standa sig líka með prýði - sennilega eina lagið sem er hefur lítið eða ekkert með rapp eða hip-hop að gera, og er með alvöru Slayer-gítarsóló. Restin af disknum er svosem ekkert yfirþyrmandi frábær - Helmet og House of Pain eiga sprett, Faith No More og Boo-Yaa T.R.I.B.E. eru allt í lagi. Þetta er frá þeim tíma þegar Cypress Hill voru hvað vinsælastir; þeir fá tvö lög. Jæja þá - kannske viðeigandi að þeir eiga lag með nóböddís eins og Sonic Youth og Pearl Jam.

Es. Eitthvað er þetta nýja kerfi hjá Blogger viðkvæmt, eða þá að ég kann ekki alveg á það, eða þá að það rímar illa við Opera. Ég vona að þetta sé orðið betra núna. Questionable Content-tengillinn virðist ekki virka fyrir ofan - kannske virkar hann betur hér?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home