OT for OssomTossom
Mér finnst frábært að vita af að minnsta kosti einni hljómsveit, þar sem myndlistarmaður er talinn fullgildur meðlimur - sem myndlistarmaður. „Myndlistarmaður“ er þó kannske ekki alveg rétta orðið - þetta er maðurinn sem sér um „visuals“, og ég býst við að það nái lengra en að umslögum og tónlistarmyndböndum, væntanlega eitthvað á tónleikum líka.
Það er svosem ekkert merkilegt að hljómsveitir hafi svona menn á sínum snærum. Væntanlega hafa þær flestar (a.m.k. þessar stóru) fólk til að sinna þessu augnbundna á tónleikum. Mér finnst bara svo gaman að í tilfelli Neurosis, þá sé hann tekinn sem meðlimur, ekki starfskraftur.
Annars hefur hann gert slatta af ágætum tónlistarmyndböndum. Ég hef ekki séð neitt sem hann hefur gert fyrir Neurosis, hins vegar. Síðan hans er hér, og þar má finna nokkur myndbanda hans (ef maður er með Makka).
Ég var annars á göngu í gær, tók smá krók á leið í skólann. Geng út Lækjargötu - og hvað sé ég? Kranabíl að lyfta upp skúlptúrnum á lóð MR. Ég hafði ekki tíma til að fylgjast með öllu sem fram fór, en síðar um daginn gekk ég framhjá, og viti menn: skúlptúrinn var farinn.
Loksins.

2 Comments:
Til hamingju með það Þossi, ég veit að þú ert búinn að hafa horn í síðu þessa skúlptúrs síðan þú fæddist, eða a.m.k síðan þú varst of gamall til að klifra í honum :D
Nú er bara að vona að það sé ekki bara verið að gera hann upp...
:S Það væri afleitt ... kannske er bara verið að stækka hann? Eftir viku, kominn aftur, bara fjórfalt stærri - og föl-ælubrúnn.
Skrifa ummæli
<< Home