OssomTossom is one sick puppy
Ég farinn að halda að þessi einkunn sem gefin er fyrir ritgerðinar í ritþjálfun byggist aðallega á útliti, ekki innihaldi. En kannske er ekki hægt að ætlast til annars - það er takmarkað hve miklu innihaldi er hægt að troða í 400 orð. 400 orð, og svo vill kennarinn að ég noti enn fleiri orð - skil þetta ekki.
-+-+--+-+-+--+-+-+--+-+--+-+-+-
Einu sinni skrifaði Shakespeare verkin sín. Allt gott og blessað með það - á einhverju varð kallanginn að lifa. Ef ég man rétt, þá var hann almennt vinsæll, jafnvel á meðal ómenntaðs almúgans - semsagt, lágmenning af bestu sort (nema þá ef almúginn þá var, almennt og yfirleitt, hámenningarlegur). Í dag er hann hins vegar (oftar en ekki) talinn frekar hámenningarlegur, ekki satt?
Það er bara vegna þess hve langt er liðið síðan hann var uppi. Allt gamalt er hámenningarlegt, sko. Þess vegna er frábært að ímynda sér stöðuna eftir svona fimm hundruð ár, þegar Something About Mary og Dumb and Dumber verða komin á Shakespeare-stallinn (og Shakespeare kominn á Hómer-stallinn, og Hómer kominn ...).

2 Comments:
Ertu þá að hneykslast(vá hvað þetta orð lítur undarlega út...) á of hárri einkunn því þú hugsaðir bara um útlitið eða ertu fúll yfir of lágri einkunn fyrir að hafa ekki hugsað um útlitið?
I dont get it...or do I?
Ég er nú ekkert að hneykslast ... mér finnst þetta bara svolítið skrýtið - samt samtímis skiljanlegt - að það virðist skipta meira máli hvernig maður segir eitthvað, heldur en hvað maður segir. En einkunnin var í góðu lagi.
Skrifa ummæli
<< Home