Solvet OssomTossom in favilla
Búinn að horfa dulítið á Rome undanfarið. Stórskemmtilegir þættir, og jafnvel vandaðir líka. Kannske þarf að hagræða einhverjum sagnfræðilegum atriðum til söguþráðurinn verði meira spennandi og dramatískari, og ég sé svosem ekkert að því. Auðvitað væri skemmtilegra ef þættirnir væru enn ítarlegri, og ekki farið yfir sumt á hundavaði (eins og t.d. dvöl Sesars í Egyptalandi og þeim slóðum) - en það er svosem það sama og mætti segja um Troy og Lord of the Rings. Og, eins og t.d. Neil Gaiman hefur bent á, þá er margt sem gengur upp í bókum, en passar alls ekki við kvikmyndir, og öfugt. Kannske ég hafi nefnt það áður, en mikið yrði Hringadróttinssaga óttalega leiðinleg ef hún yrði endurskrifuð þannig að hún fylgdi myndunum nákvæmlega. Sagan af Tróju yrði heldur ekkert svo áhugaverð.
En jæja. Í þessum Rome-þáttum er auðvitað mikið um plott og baktjaldamakk og alls konar svikráð. Hinar og þessar persónur þykjast á yfirborðinu vera vinir, en eru svo að plotta gegn hverri annarri, og örugglega var það þannig í Róm á sínum tíma. Manni hætti bara til að gleyma, að svona er þetta líka í dag. Tökum til dæmis prófkjörin sem eru í gangi núna - fólk innan sama flokks er vafalaust á fullu að plotta hvert gegn öðru, og alls konar kjaftasögur í gangi.
Ég ætla auðvitað ekkert að endurtaka þær hér - þetta er ekki svoleiðis síða. En á síðum eins og t.d. malefnin.com er alveg hægt að lesa alls konar sögur. Gaman að svonalöguðu. Gamli Rómarandinn lifir enn!
Annars var bara ágætt fyrsta daginn í vinnunni, takk. Ég er greinilega fæddur til þjónustustarfa - þarf bara að muna næst að vera ekki alveg í fínustu fötunum, þetta getur orðið subbulegt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home