OssomTossom - maður mikillar hugmyndarauðgi
Ég er búinn að finna nýju uppáhalds sögutegundina mína. Landnámsbækur, þær eru málið. Nú er ég búinn að klára Watership Down - og hvílík saga. Eins og Stefán Pálsson - sem ég hef áður vísað til í sambandi við viskí - segir: Þetta er barnabók á sama hátt og Hobbitinn. Ég er svosem ekkert sammála því, að gott sé að vera laus við álfa og tröll, fyrir utan auðvitað að álfar og tröll eru alveg óþarfa skepnur í sögu um kanínur (og önnur dýr, villt og tamin) sem tala og virðast geta hugsað ansi skýrar en við gerum ráð fyrir að þau geti.
Nú, hvernig veit ég að Stefán hafi sagt þetta um þessa bók? - Ég leitaði. - Nú já, en hvers vegna var ég að leita að henni? - Mig langaði til að vita hvort hún væri til á íslensku. 2004 var hún ekki til - það þarf að gera eitthvað í þeim málum, er það ekki? En áður en það gerist hvet ég alla til að lesa þessa bók - hún er til á öllum almennilegum bókasöfnum (ætli fáanleiki þessarar bókar geti verið mælikvarði á gæði bókasafna, eða a.m.k. verið hluti hans?), og ég ætti að þola stundarskilnað við hana, en ég á samt eftir að vilja lesa hana aftur, aftur og aftur.
En landnámssögur, já. Ég man reyndar bara eftir að hafa lesið eina aðra svoleiðis - mjög skemmtilega, jafnvel þótt gæðin hafi verið svona upp-og-ofan - The Spider's Test, sem ég keypti i Kaupmannahöfn sumarið 2000, þegar ég heimsótti Kára þangað (einhvern tíma í júlí, minnir mig, en það gæti hafa verið snemma í ágúst). Ekkert merkileg bók, þannig séð, bara skemmtileg saga af landnámi. Svo er auðvitað ákveðin landnámssaga fólgin í leikjum eins og Civ-leikjunum og t.d. Alpha Centauri, Catan og Settlers - en það er kannske ekki alveg eins, nema auðvitað maður leggi aðeins meira á sig og búi til sögur jafnóðum og maður spilar. Þetta er semsagt nýja uppáhalds sögusortin mín, og vonandi á ég eftir að lesa nokkrar enn áður en ég skipti yfir í Rauðu Seríuna.
En mikið er/var Bon Scott mikið skemmtilegri söngvari heldur en hinn, Brian Johnson. Kominn tími til að fara nálægt Madríd - þar má finna Calle de AC/DC, og rétt hjá henni er Iron Maiden gata. Í alvöru, það er kominn tími til að fara að nefna götur eftir stórstjörnum sem hafa spilað á Íslandi. Eða bara tónlistarmönnum yfirleitt, svona þessum stærri. Led Zeppelin-braut, Metallica-braut, Megadeth-stígur. OssomTossom sem borgarstjóra!
Ég er byrjaður á illithid-verkefninu, búinn að gera frumgerð. Að vísu úr pípuhreinsurum, korktappa og kennaratyggjói - en þetta er skref í rétta átt. Myndir ... bráðum. Illithid - illþýði? Það þarf bara að færa einn staf til.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home