Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

19.10.06

OssomTossom is the new black

Jæja, svo menn eru aftur farnir að veiða hval í atvinnuskyni. Frábært að einhver skuli reyna að svara þeirri rosalegu eftirspurn sem verið hefur eftir hvalkjöti. Vonandi fá lögmál markaðarins að ráða hér - ef þetta borgar sig ekki, þá hætti menn þessu án þess að ríkið fari að skipta sér af.

Það er að segja, það væri frábært ef menn væru að gera það á réttum forsendum.

Nú eru fiskveiðar ennþá ein undirstöðuatvinnugreina Íslands, og því ekkert nema gott eitt um það að segja að menn reyni að passa upp á fiskstofnana, að hvalirnir séu ekki ýmist að éta alla fiskana eða þá að éta allan matinn frá fiskunum. Hins vegar á ekki að veiða nema hvað, 30 hrefnur (af 44 þúsundum í kringum Ísland) og 9 langreyðar (af áætluðum 23 þúsundum í hafinu á milli Íslands og Grænlands - stofnstærðir koma frá LÍÚ). Það er ekkert svo mikið af hval - og þótt ég sé svosem enginn fiskifræðingur, þá býst ég við að það þurfi að drepa talsvert fleiri hvali en þetta til að passa uppá fiskinn okkar.

Nema menn geri ráð fyrir því að geta selt þetta allt saman (væntanlega til Japans, ég hef ekki heyrt af því enn að Íslendinga skorti hval til þorrablóta - duga hvalrekar ekki alveg til að svara þeirri þörf?), þá grunar mig að þetta sé fyrst og fremst tilraun til að sýna smá sjálfstæði - sýna að Ísland sé ekki alveg undir hæl Bandaríkjanna. Þess vegna finnst mér dálítið eins og að þetta sé eins og þegar þrettán ára gelgja er úti lengur en foreldrarnir leyfa - til að sýna að hún sé ekki algerlega undir hæl foreldra sinna.

Ekki það að ég hafi eitthvað á móti hvalveiðum, þannig - og finnst alveg sjálfsagt að menn reyni að passa fiskinn, þessa undirstöðu Íslands. Ja, í það minnsta þar til einhver fattar hvernig nota megi kynlíf til orkuframleiðslu fyrir verksmiðjur og álver og svoleiðis - þá er örugglega kominn tími til að hætta fiskveiðunum og fá sér skemmtilegri vinnu.

Í sumum ríkjum Bandaríkjanna má taka menn af lífi fyrir ákveðnar tegundir glæpa, eins og morð og þess háttar barnaskap. Einn þeirra sem bíður eftir sinni lögmætu refsingu heitir Jeffrey Lundgren og er vonandi ekkert skyldur honum Dolph mínum. Sá ljúfi maður (Jeffrey, það er að segja) drap fimm manna fjölskyldu vegna þess að það stóð í Biblíunni að hann skyldi gera það.

Hefði þetta mál fengið meiri athygli, til dæmis á Íslandi eða annars staðar utan Bandaríkjanna, ef hann hefði sagt að þetta stæði í Kóraninum, og gert þetta núna nýlega (ekki 1987)? Skiptir svosem ekki máli, ég hef engan áhuga að gera eitthvað álíka lítilfjörlegt og óspennandi eins og áhugamál fjölmiðlafólks að umræðuefni.

Þessi maður, sem á að taka af lífi með eitursprautu - hann segir að hann sé of feitur og of sykursjúkur til að það megi taka hann af lífi með þeim hætti. Vegna þess að hann er of feitur og sykursjúkur, þá er meira en líklegt að hann muni finna til þegar eitrinu er sprautað í hann.

Semsagt - það má ekki taka hann af lífi, vegna þess að líklegast muni hann þjást aðeins áður hann drepst; refsingin er of sársaukafull til að það megi leggja hana á hann. Vill hann kannske frekar vera hengdur eða skotinn?

Nú er ég svosem enginn fylgismaður dauðarefsinga - finnst miklu betri hugmynd að finna einhverja miðlungsstóra eyju í Norður-Atlantshafi eða Norður-Íshafi (eða Kyrrahafi ef ekkert finnst hérna fyrir norðan) þar sem þeir fengju að vera það sem eftir er - en síðan hvenær áttu dauðarefsingar að vera notalegar?

Fyrir þennan tiltekna kristna mann, þá hefði ég haldið að nóg væri að segja við hann:

„Þú ert kristinn, er það ekki? Þú trúir á almáttugan og réttlátan Guð, þrátt fyrir allt. Ef þú finnur til - þá er það bara vegna þess að Guð vildi það; ef hann vill ekki að þú finnir til, þá verður þetta þér alveg þjáningarlaust.“

Hvernig gæti sannkristinn maður þrætt fyrir þetta? Eða skyldi krossmaðurinn vera eitthvað hræddur við að hljóta sinn dóm?

Annars er mér nokk sama - ekki er mínum skattpeningum sóað í að halda lífinu í þessum manni, og miðað við það sem Bandaríkjastjórn sóar peningunum „sínum“ í (sem er ekki NASA, því miður), þá held ég að enn einn óður maður í fæði og húsnæði hins opinbera í nokkur ár til viðbótar geti varla skipt svo miklu máli.

Kannske jafn miklu máli og þrjátíu og níu hvalir (af sextíu og níu þúsundum) til eða frá skipta máli fyrir íslenska fiskistofna?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home