Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

17.10.06

Betri er einn OssomTossom í bóli heldur en tveir á barnum

Í gær lærði ég á Excel. Eða einhverja cheap-ass útgáfu sem fylgdi með tölvunni - Microsoft Works Spreadsheet. Sýnist þetta vera nokkurn veginn það sama.

„En OssomTossom,“ spyr fólk, „hvers vegna varstu að læra á þetta helvíti? Ætlarðu að verða skrifstofumaður þegar þú verður stór?“

Já, kannske enda ég á einhverri kósí skrifstofu níu til fimm/átta til fjögur. Ekkert að því á meðan launin nægja mér. En það var ekki þess vegna sem ég var að læra á þetta.

Og kannske er „læra“ full-sterkt að orði kveðið.

Eins og flestir vita, þá stendur til að lækka virðisaukaskatt á matvæli einhvern tímann á næsta ári, og þetta á víst að spara fólki smá aur í matarinnkaupum. Hins vegar er alveg mögulegt að kaupmenn ákveði að svindla smá og hækka verð smátt og smátt - þeir hafa nokkra mánuði til stefnu, þannig að þeir geta vel hækkað án þess að fólk taki eftir sé það ekki þegar að fylgjast með - þannig að þegar virðisaukaskatturinn lækkar, þá kostar maturinn álíka mikið og áður.

Ekki svo að skilja að þessi tilraun/athugun mín eigi eftir að hafa einhver áhrif á matarverð.

Hins vegar er líka ágætt að fylgjast með því í hvað maður er að eyða peningnum. Maður er yfirleitt ekkert lengi að slá þetta inn í tölvuna, nema maður sé að kaupa óttalega mikið í einu, svo þetta ætti að vera ekkert mál. Bara gaman að sjá í hvað peningurinn fer, hvar má sleppa og hve miklu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home