Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

12.10.06

Þótt þú gleymir OssomTossom, þá gleymir OssomTossom ekki þér

Nú er ég kominn á séns. Ef ég verð heppinn, þá mun ég, að viku liðinni, vera starfsmaður Þjóðarbókhlöðunnar. Reyndar bara í kaffiteríunni, en það er þó eitthvað. Ef þetta verður ekki of mikil vinna, það er að segja - nýja mottóið mitt er nefnilega Vinna minna, lifa meira! Það væri leitt að brjóta mottóið viku eftir að ég hef tekið það uppá mína arma. Mottó eru nefnilega sterkari boðorðum.

Ég hef rétt aðeins byrjað á Watership Down og hún lofar barasta mjög góðu. Held að í kvöld muni ég bara alls ekkert kíkja á Október-fest eins og til stóð - heldur bara sitja heima og lesa í þessari bók. Svo er líka eitthvað karaoke-dæmi í gangi á vegum enskunnar á morgun - get ekkert verið að drekka tvo daga í röð. Svo á ég víst að tala við manninn sem rekur þessa teríu hálf-tólf á morgun, og þá má nú ekki vera þunnur.

Sjáiði þetta? Ég er búinn að fá hugmynd sem ætti vafalaust að gleðja lesendur: Ég ætla að búa mér til leirstyttu af þessu kvikindi. Gera víraverkið undir og þekja það svo með leir. Annað hvort nota ég litaðan leir eða ég mála hana síðar, ég er ekki viss ennþá. En best af öllu er, að ég ætla mér að taka myndir af öllu ferlinu og pósta þeim hingað inn (eða bjóða upp á tengil eitthvert þar sem ég get geymt myndir), svo allir geti séð hversu ógurlega fær ég er ... eða klaufskur, ef allt fer úr skorðum. Kannske ég fái mér þó nokkrar bækur úti á bókasafni um hvernig sé best að skipuleggja svona verkefni - eða ég geri þetta bara alveg frá grunni, ég hef ekki ákveðið mig ennþá. Það er svosem nægur tími til stefnu, þetta er ekki hugsað sem jólagjöf eða neitt slíkt. Hafi ekkert gerst eftir mánuð er þó óhætt að spyrja og minna á.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já Cthulhu gamli... Ert þú long-time fan? Ég hef lengi ætlað að kynna mér Lovecraft en kom því ekki í verk fyrr en nýlega...er einmitt að lesa ritgerð Houellebecq um hann og nokkrar smásögur. Svo er víst bíómynd væntanleg en hún er örugglega rusl eins og allar hinar.

Það verður gaman að fylgjast með þessum gjörningi...endilega að setja myndir á Flickr eða e-ð. Nú verðurðu að standa við stóru orðin fyrst þú ert kominn með áhorfendur!

Gaman að þú sért farinn að blogga aftur og svona virkur í því.

10:11  

Skrifa ummæli

<< Home