Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

10.10.06

Ph'nglui mglw'nafh Oss'm T'ss'm R'lyeh wgah'nagl fhtagn

Prófið var ágætt, takk fyrir. Í kvöld ætla ég að sjá Jonathan Richman í Iðnó, og fagna þannig "próflokum". Á morgun ætla ég að leggja fyrstu drög að þriðju ritgerð í ritþjálfun (mikið er nú gott að læra loksins að skrifa ritgerðir!), efnið er "Which do you think has a greater effect on a person: heredity or environment?" Sem er gott, verst að maður fær hámark 400 orð. Menn (aðrir en ég, samt) hafa fyllt 400 blaðsíður af minna tilefni. Ætli það sé hægt að fá undanþágu - bara aðeins fleiri orð?

Það er komið á hreint - ég fer til Noregs 22. des, kem heim 3. jan. Stutt stopp - en lengra en stoppið hans Hákonar, sem entist bara í viku, og talsvert lengra en væntanlegt stopp Hildar og Síverts, sem endist bara í helgi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home