Svo mælti OssomTossom

Ég meina það sem ég segi þegar ég segi það. Hvað með það þótt ég hafi skipt um skoðun hálfmínútu síðar?

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

14.10.06

OssomTossomlegt, alltof OssomTossomlegt

Þar sem ég hef ekkert betra að gera, þá skelli ég bara inn skýrslu fyrir gærkvöldið - sömu skýrslu og ég senti til Vínveitingahúsarannsóknarinnar sem ég nefndi fyrir nokkrum póstum. Er annars búinn að skrifa nóg í dag.

13.10.06

Hugmyndin var sú að kíkja á karaeoke-kvöld á Celtic Cross ásamt meðnemendum. Kannske syngja eins og eitt lag, jafnvel. Þrátt fyrir að tilboð yrðu á barnum, þá þótti mér þó hyggilegra að drekka aðeins áður en lagt yrði af stað, og jafnvel borða eitthvað. Eftir dulitla vangaveltu ákvað ég að láta undan ruslþörfinni og pantaði Dómínós-pizzu. Ég var líka nýbúinn að fá smá aukavinnu, svo ég hugsaði með mér að ég mætti alveg eyða aðeins meiri pening en ég eyði venjulega í mat, svona einu sinni. Eftir mat og smá drykkju var ég orðinn býsna þungur í maga. Þá fékk ég þá bráðfrumlegu hugmynd að leggja mig áður en lagt yrði af stað - og svaf eins og barn í hátt í tvo tíma.

Tilkynnt var að þetta myndi byrja klukkan átta í kjallara staðarins (sem er „heimabar“ okkar enskunema) - en ég þekki svosem þetta fólk og veit að það mætir sjaldan eða aldrei á réttum tíma, og gat því leyft mér að sofa þar til klukkan var orðin átta, og síðan tekið mér góðan tíma til að vakna. Ég skrifaði meira að segja inngang að þessari skýrslu, en af einhverri ástæðu var hún horfin þegar ég kom heim seinna um kvöldið. O jæja.

Hvað um það, þegar ég mætti (um 2045 eða svo) var varla nokkur mættur, fimm til sex stykki, og kerfið ekki einusinni komið í gang. Það var þá kjörinn tími til að fara á barinn og gá hvort smá bjór gæti ekki slegið á sviðskrekkinn sem ég fann þá þegar fyrir - og það án þess að hafa ákveðið hvort ég myndi yfirleitt syngja eða ekki, og jafnvel hallaðist ég frekar að því að láta það eiga sig. Mætingin átti varla eftir að lyftast mikið upp síðar meir - það voru kannske fjórtán manns þegar best lét. Hefði kannske verið nær, eins og einhver stakk upp á, að hleypa nokkrum bandarískum sjóurum niður til okkar og lofa þeim að vera með.

Sennilega voru það mistök að borða svona mikið, því allt kvöldið drakk ég og drakk en fann þó lítið á mér. Sennilega hefur áfengið ekkert komist að í meltingarkerfinu fyrir öllu þessu brauði. Eitthvað var ég líka ennþá þungur á mér eftir lúrinn - og svo það að meltingarfærin fengu bróðurpart blóðsins - en ég held bara að ég hafi sjaldan verið jafn latur og slappur og þetta kvöld. Það bætti svosem ekkert úr skák að vera einn af tveim eða þrem sem sungu ekki - hálf skammarlegt, svona eftir á að hyggja. Afsökunin „En það eru engin áhugaverð lög hérna!“ dugar ekki lengi, jafnvel þótt hún sé dagsönn.

Ég fór því tiltölulega snemma heim - í rigningu, auðvitað - ákveðinn í því að borða og sofa minna áður en kemur að næsta svona kvöldi. Þá kannske - séu fleiri söngvæn lög í boði - get ég stigið á svið og gaulað eitthvað á meðan enginn fylgist með.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home