OssomTossom - in your face like a bad case of acne
Fór í sund í dag, og mér til gamans steig ég á viktina fyrir og eftir sturtu (áður en ég fór ofan í). Þyngdist um næstum hálft kíló (eða var það jafnvel aðeins meira?) í sturtunni. Ég geri ráð fyrir að það sé vegna vatns sem sest að í hári og skeggi. Öll þessi auka þyngd gerir sundið auðvitað aðeins erfiðara, en það sem erfiðar sundið samt mest er allt þetta ósynda fólk sem gerir ekki annað en að flækjast fyrir. Mér líður eins og ég sé að keppa í svigi. Það mætti kannske gera þetta að keppnisíþrótt á Ólympíuleikunum - svigsund?
Fyrst minnst var á Ólympíuleikana, þá er víst hefð í enskuskor að halda uppá Halloween með pompi og prakt. Allir mæta í búningum, og undantekningalaust er örugglega a.m.k. ein slutty nurse. Ég hafði hugsað mér að toppa það, og mæta sem forn-grískur íþróttakappi. Ef ég man rétt, þá voru glímukapparnir ekki aðeins kviknaktir, heldur olíubornir líka. Alveg er ég viss um að slíkur búningur myndi vekja mikla aðdáun.
Aftur að sundi. Fyrst það er svona erfitt að synda með skegg, þá kættist ég mjög þegar ég las (á wikipedia, auðvitað) að 10-20 mínútur í gufubaði jafngilda álíka tíma af rösklegri göngu. Ekki slæmt, ha - bara sitja í gufunni og hafa gaman af (kannske fara aðeins út og fá sér sopa af vatni). Þannig að jafnvel þótt ég muni kannske ekki synda mikið, þá mun ég sitja talsvert - og hafa gott af.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home