Hinn rósfingraði OssomTossom
Hefur einhver tekið eftir því, hve lík orðin "eyða" og "breyta" eru? Til dæmis: "Ég hef eytt" og "ég hef breytt".
Þetta passar líka ósköp vel. Ef maður breytir einhverju, þá er maður líka að eyða því sem var og búa til eitthvað nýtt. Máli ég t.d. hvítu veggina í stofunni minni neonrauða, þá hef ég eytt þessum hvítu veggjum og búið til rauða. (Ég hef þá sennilega líka lagt grunninn að eyðingu geðheilsu minnar...)
Ég legg því til, Mörður Árnason (ef þú ert að lesa), að í næstu orðabók munir þú breyta "eyða" í "eyta" eða "breyta" í "breyða". Þú mátt ráða - en þú þarft þá líka að geta þess í færslunni, hver lagði þetta til.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home