Aut tace aut loquere meliora OssomTosso
Alveg er þetta póstfyrirtæki merkilegt. Ég hef beðið með öndina í kokinu núna í hartnær viku eftir að heyra dyrabjölluna hringja og sjá niðri póstmann með pakka til mín: Nýja Iron Maiden diskinn, nýja Mastodon-diskinn og bókina Watership Down - sjaldgæf undantekning frá þeirri reglu að lesa ekki skáldskap (aðrar nýlegar undantekningar eru þegar ég keypti tvær bækur í fornbókasölunni við Hverfisgötu, sömu götu og Sirkus er við: Stálhellar eftir Isaac Asimov og Á refilstigum eftir Robert Parker; Föðurland eftir Robert Harris keypti ég í Máli og menningu fyrir 400-kall; og svo pantaði ég bækur um þá Jeeves og Wooster frá Amazon nýlega. Annars er ég hættur kaupa bækur aðrar en skólabækur, a.m.k. þangað til ég er búinn með þær sem eru hér þegar. En aftur að raunasögu minni ... ). Nú, þessi þrjú stykki voru sent af stað 27. september síðastliðinn. Sjötta október var hún sett á afhendingarlista og þá væntanlega sett í bílinn - en bíllinn hefur orðið fyrir töfum, svo ekkert varð af því það kvöldið. Það var föstudagur og næsta útkeyrsla var því á mánudegi. Þá var engin töf. Kom pakkinn til mín?
Onei. Í staðinn er sagt: „Tilkynning skilin eftir. Sækist á pósthús“.
Nú. Ég fór ekki útúr húsi á mánudaginn. Ekki spönn frá rassi. Ég var að fara í próf daginn eftir, og fór ekki út úr húsi. Að minnsta kosti, ekki á þeim tíma sem póstmennirnir keyra út póstinn. Var dyrabjöllu hringt? Nei. Var einhver miði eða tilkynning þarna niðri? Gettu. Það er þó gott að hægt sé að rekja sendingar hjá póstinum - annars þyrfti ég að bíða talsvert lengur eftir þessu.
Tuð búið.
Annars er ég búinn að skrá mig í bara býsna áhugaverða könnun: Hvaða hlutverki gegna vínveitingahús í þínu lífi? Þó er skemmtilegra hvernig ég komst þangað:
Ég byrjaði á síðunni hans Geirs, og fór þaðan með tengli til hennar Eyju sem kenndi mér í málstofu um hug, mál og hugspeki (mind, language and cognitive science) fyrir nokkrum árum. Allt gott og blessað með það, alltaf gaman að fylgjast með sínum fyrrum kennurum (hvað ætli Siv sé að gera þessa dagana? En Eyjólfur Kolbeins?).
En hjá henni sá ég síðan link: Parísardaman sem ég sá í sumar en var búinn að gleyma. Þetta er semsagt vinkona Emblu, og ég ákveð að kíkja og sjá hvað hún er að gera. Bara standard stalker-hegðun, þið skiljið, ekkert óvenjulegt. Hjá henni er óttalegt magn tengla, eins og lesendur geta séð ef þeir gá, og þar er einn: Internetmamman.
Og þarmeð var ég búinn að finna óskir um umsókn eftir þátttöku í áðurnefndri rannsókn.
Loksins loksins: Legit ástæða til að fara á bari á hverju kvöldi (þótt ég láti það annars eiga sig í kvöld)! Og allt Geir að þakka!

1 Comments:
Verði þér að góðu :)
Skrifa ummæli
<< Home