It's very hard to trust a man who wants to borrow me picklocks, sir.
Jæjajæja ... Kári og Elín (Uni-Kay og Ella Fitz eins og þau heita í símaskránni minni) bara að fara að gifta sig á eftir. Ekkert nema gott um það að segja - ég myndi óska þeim til hamingju hér, ef ég væri ekki að fara að gera það í eigin persónu á eftir.
Í dag er líka síðasti dagurinn í dálítinn tíma sem ég mun raka mig. Ég vil ekki vera illa rakaður í brúðkaupi - slíkt gengur bara ekki. Ef ég byrja núna, þá ætti ég að vera kominn með trúverðugt skegg þegar ég byrja í skólanum.
Já og hey, ég var að kaupa miða til Noregs. Fer héðan 21. ágúst, kem hingað aftur 4. september. Það þýðir sennilegast að ég hætti að vinna í kringum 14. ágúst. Smá frí áður en ég fer í frí.

1 Comments:
Ég vona að þú hafir skemmt þér vel Þossi minn :) Við þökkum fyrir gærdaginn kæri vin.
Kári og Elín
Skrifa ummæli
<< Home